egkomstinn.is
14.09.2006 21:06:54 / leiklist

nýtt blogg

í dag var stofnað nýtt blogg á slóðinni:

egkomstinn.blogspot.com

það mun taka við af þessu bloggi

spennandi spennandi!

kveðja vefstjórnin

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 19:49:23 / leiklist

Fjölskylduball

Núverandi og fyrrverandi nemendur í Leiklistarskólanum héldu haustfagnað sinn á laugardagskvöldið. Nýnemum í skólanum þótti ekki ónýtt að fá að skemmta sér með kempum á borð við Ingvar E. Sigurðsson, Ólafi Darra Ólafsson, Víking Kristjánsson og Guðrúnu Gísladóttur. Ekki skemmdi fyrir að Ingvar tók með sér sjálfan Gerard Butler og annan leikara úr Bjólfskviðu og var erlendu gestunum tekið með kostum og kynjum. Það vakti sömuleiðis athygli að Þorvaldur Davíð Kristjánsson mætti í veisluna, en hann hætti sem kunnugt er námi við leiklistardeild LHÍ eftir einn vetur. Vinir og félagar Þorvaldar notuðu tækifærið til að kveðja hann með virktum og ætlaði kossaflensi og faðmlögum seint að linna. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 09:24:50 / leiklist

Terroristahóran

Knattspyrnufélag Leiklistardeildar mætti til leiks í þriðja sinn í gær á gervigrasvelli Austurbæjarskóla og atti kappi við einhverja Ítala og nokkra krakka. Skemmst er frá því að segja að liðið beið nauman ósigur 11 -12 í hörkuleik, þar sem Hóran virtist ætla að hafa betur framan af. Nokkuð ljóst er leikmenn þurfa að koma sér í betra form.

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 18:56:45 / leiklist

NÝ VEFSTJÓRN

Ágætu sviðslistanema og aðrir velunnarar sjónleikja. Pistill þessi er sá fyrsti sem meðlimur úr nýkjörinni vefstjórn birtir á þessari allt of vanræktu síðu. Vefstjórn þessi var kjörin í gær á velheppnuðum kosningafundi og hefur, eins og raun ber vitni tekið til starfa nú þegar. Meðlimir stjórnarinnar eru eftirtaldir (í öfugri stafrófsröð): Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýrfjörð, leikaranemi, Jóna svanlaug Þorsteinsdóttir, dansaranemi og Friðgeir Einarsson, Íslenskufræðingur og nemandi í Fræði & framkvæmd. Vefstjórn hefur heitið auknum dugnaði og brydda upp á ýmsum nýjungum, þ.á m. birtingu á myndum frá viðburðum og félagslífi innan deildarinnar. Leti og slæleg vinnubrögð verða ekki lengur liðin; nothæf og metnaðarfull forysta hefur tekið við af hinni gömlu, þótt fyrr hefði verið. Séu lesendir mér ósammála í þessum efnum og saka mig um dylgjur í garð fyrri vefritara bendi ég á færsluna hér á undan. Var hún rituð í apríl, sem þýðir að fimm mánuðir hafa liðið á milli tilkynninga. Auk þess má finna í færslunni málvillur, settar fram af yfirlögðu ráði. Ekki veit undirritaður hvað slíkt á að fyrirstilla, eða hvers konar umhverfi nærir slíka fólsku, en lýsir því hér yfir að háttalag á borð við þetta á sér ekki tilverurétt innan veggja skólans, hvað þá á opinberum vettvangi svo sem vefmiðli. Með von um samstöðu og baráttuþrek á komandi vetri, Friðgeir Einarsson.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 17:54:54 / leiklist

Inntökupróf

Bara fyrir viku síðan var tilkynnt um hverjir kæmust inn í leikarann. Núna bráðum verður tilkynnt hverjir komust inn í frægð og frama.

Lokaverkefni, og ritgerðir eru í algleymingi. Mér hlakkar til að borða páskaegg.

MÉR HLAKKAR til að borða páskaegg.
MÉR HLAKKAR til að borða páskaegg.

Það er ekki til rétt tungumál. Og allir sem halda því fram, eru í liði með feðraveldinu, og eru módernískir fasistar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 19:14:20 / leiklist

Húrra! Húrra! Húrra!

Atvinnuástand á Suðurnesjum hefur versnað snarlega. En það er frábært fyrir höfuðborgarsinna eins og mig, því ég er friðarsinni líka. Nú er herinn að fara í burtu og húrra fyrir því!

Baugur var svo sýknaður. Ríkisstjórnin sóaði 140 milljónum í þetta mál og þeim tókst ekki einu sinni að troða upp á þá stöðumælasekt.
Synd, við hefðum kannski getað kríað út úr þeim einu tónlistarhúsi, eða jafnvel listaháskóla... En núna neyðumst við (ríkið) til að greiða þeim skaðabætur.

O, jæja. Ég mótmæli því að nemendur þurfi að greiða pening fyrir ljósritunarkostnað!

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 18:59:30 / leiklist

Akureyrarferðin

Fukking fjör. Svoldið seint blogg, ég veit. Hvað á ég að segja sem þið hafið ekki heyrt  áður? Það væri meira vit í því að setja myndir upp á þessa síðu? Hvernig er það, ætlar engin að skella þeim inn?

Annars þá er veðrið komið í ruglið. Ætti ekki að vera komið vor? Og hvað er málið með póstdramatíska texta? Sarah Kane er dauð, og það er Gandhi líka.

Lengi lifi Hressisminn! Antítesa dauðans.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 08:31:17 / leiklist

Ball í vændum

Á Laugardaginn er haldið ball! Þokkalega.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 21:33:00 / leiklist

Karíókí kvöld

Það er karíókí kvöld á Laugardaginn, klukkan átta, í hráa sal. Það ætla allir að syngja!

Föstudaginn stórafmæli, Laugardagur: Karíókí. Góð helgi framundan hjá leiklistardeildinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 20:07:30 / leiklist

Ljóðakvöld

Það er ljóðakvöld framundan. Næsta Fimmtudag, klukkan 8 niður í skóla. Fólk má lesa upp ljóð, syngja og flytja lög. Mig grunar jafnvel að sumir muni mæta og lesa upp stefnuskrár!!!

Öllum er leyft að taka þátt, hverjir sem þeir eru og hvernig sem framlag þeirra er.

Í öðru lagi vil ég nýta tækifærið til að skora á myndlistarnemanna í Laugarnesinu. Ég vil skora á ykkur í Gjörningakeppni til að útkljá í eitt skipti fyrir öll hvort gjörningar séu myndlist eða leiklist.

Snæbjörn B


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 20:39:02 / leiklist

Gjörningakvöldið

Gjörningakvöldið tókst vel upp. Mæting var góð og atriðin voru svakaleg. Kínverjar, hrossabjúgur, skeiðar, flyglar, ljósrit og kaffi flugu um gólfin.

Friðgeir, Kalli og Árni voru með dansatriði sem var svakalega vel gert. Mjög metnaðarfullt og vel unnið sjóv.

Ég spilaði af píanó af stakri snilld og hent kínverjum í fólk.

Þórey, Ásgerður og Katrín voru með mjög töff dansspuna.

Heiðar spilaði boybandalög á kassagítar af stakri snilld.

Eva og Friðgeir færðu okkur svo atriði af sjónvarpstöðinni Sirkús. Ég legg til að Eva verði með í Pirates of the Carribean 4!

Síðan var spilað á gítara og drukkið. Þetta var töff kvöld, sem heppnaðist óumdeilanlega vel, og ég sé persónulega eftir því að hafa ekki auglýst það betur, því ég vorkenni þeim sem fóru á mis við kvöldið.:cry:


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 17:06:50 / leiklist

Góða ferð

Þriðja árið er á leið til Finnlands. Djöfull öfunda ég þau. Loksins byrjuð með að læra söngleiki. Mér skilst að Finnarnir séu alveg frábærir. Annars er ég forvitinn um hvernig finnskir leikarar eru. Eflaust allar sænskumælandi Finnar. Finnskumælandi Finnar eru fremur lokaðir. Húrra! Gjörningakvöld á Föstudaginn! Húrra! Húrra! Húrra!* Já gjörningakvöld er á Föstudaginn. Það eru nokkur atriði þegar skráð, svo það verður fjör. Öllum leyfilegt að mæta. *Fær þrjú Húrra! Af því ég er með gjörning.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 23:54:22 / leiklist

Manifestó

Hvort er flottara?

Manifestó leiklistardeildar listaháskóla Íslands.

*Við erum samfélag sjálfstætt skapandi listamanna.

*Viðmið okkar er heimurinn.

*Við erum framsækin, forvitin og höfum frumkvæði.

*Við lítum á leiklist sem tækifæri ekki stofnun.

*Við lítum á tækni sem verkfæri en ekki takmark í sjálfu sér.

*Við notum söguna sem stökkpall inn í framtíðina.

*Við sækjum fordómalaust efnivið inn í aðrar greinar lista og vísinda.

Eða þetta?

MANIFESTO OF FUTURISM

  1. We want to sing the love of danger, the habit of energy and rashness.
  2. The essential elements of our poetry will be courage, audacity and revolt.
  3. Literature has up to now magnified pensive immobility, ecstasy and slumber. We want to exalt movements of aggression, feverish sleeplessness, the double march, the perilous leap, the slap and the blow with the fist.
  4. We declare that the splendor of the world has been enriched by a new beauty: the beauty of speed. A racing automobile with its bonnet adorned with great tubes like serpents with explosive breath ... a roaring motor car which seems to run on machine-gun fire, is more beautiful than the Victory of Samothrace.
  5. We want to sing the man at the wheel, the ideal axis of which crosses the earth, itself hurled along its orbit.
  6. The poet must spend himself with warmth, glamour and prodigality to increase the enthusiastic fervor of the primordial elements.
  7. Beauty exists only in struggle. There is no masterpiece that has not an aggressive character. Poetry must be a violent assault on the forces of the unknown, to force them to bow before man.
  8. We are on the extreme promontory of the centuries! What is the use of looking behind at the moment when we must open the mysterious shutters of the impossible? Time and Space died yesterday. We are already living in the absolute, since we have already created eternal, omnipresent speed.
  9. We want to glorify war - the only cure for the world - militarism, patriotism, the destructive gesture of the anarchists, the beautiful ideas which kill, and contempt for woman.
  10. We want to demolish museums and libraries, fight morality, feminism and all opportunist and utilitarian cowardice.
  11. We will sing of the great crowds agitated by work, pleasure and revolt; the multi-colored and polyphonic surf of revolutions in modern capitals: the nocturnal vibration of the arsenals and the workshops beneath their violent electric moons: the gluttonous railway stations devouring smoking serpents; factories suspended from the clouds by the thread of their smoke; bridges with the leap of gymnasts flung across the diabolic cutlery of sunny rivers: adventurous steamers sniffing the horizon; great-breasted locomotives, puffing on the rails like enormous steel horses with long tubes for bridle, and the gliding flight of aeroplanes whose propeller sounds like the flapping of a flag and the applause of enthusiastic crowds.

Ég krefst þess að Listaháskóli Íslands taki upp stefnuskrá Fútúristanna!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 22:56:43 / leiklist

Mind Camp Mein Kampf

Mind Camp var helvíti góð sýning. Ég ætla nú ekkert að raupa innihaldinu, því ég vil nú ekki eyðileggja sýninguna fyrir fólki. Það er erfitt að segja þetta orð án þess að fólk rugli því við Mein Kampf en það er víst búið að fresta þeirri sýningu af því að í Borgarleikhúsinu hefur fólk aldrei heyrt um sparigrísi.

Annaðhvort það eða borgin og ríkið nota sparigrísi of mikið.

Annars var Flísfundur í dag og mikið rætt. Innan skamms birtist stundatafla yfir viðburði hér á síðunni og ég set niðurtalningarklukkur í gang. Það er von á böllum, 1.apríl, en man ekki hvenær hitt ballið er en það er víst á afmæli Önnu Svövu. Til hamingju með það.

Rætt var um kaffimál og einhver niðurstaða komst skilst mér. Annars er mér sama því ég drekk ekki kaffi. Einnig var rætt um listakvöld sem verða í umsjá Árna. Ég geri ráð fyrir að einhver leiklestrarkvöld verði haldin á önninni. Það má búast við mikilli keyrslu!

Andalúsíuhundurinn er geðveik mynd, bókstaflega og óeiginlega.

Húrra fyrir lítilli hlandlykt í sturtuklefum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 17:37:26 / leiklist

3.dagur

Áfangarnir nýju leggjast ágætlega í mig. Get svo sem lítið sagt um leikaranna en hvað varðar fræði og framkvæmd þá líst mér þokkalega á stundatöfluna. Það stendur til að koma miklu í verk.

Ég óska Gunna og Laufeyju til hamingju, við erum þvílíkt stolt af ykkur. Í alvöru talað, 37 milljónir Gunni! Massífur kvikmyndastyrkur. Og Laufey, ég á ennþá eftir að sjá leikritið þar sem frumsýningu er enn ólokið en til hamingju með hlutverkið.

Vinnustofan fer bráðlega í gang, hlakka til að sjá hvað gengur á inn í hausnum á bekkjarfélögum mínum.

Nomayo

Snæbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4